Ljósið
- Skálmöld (2018)You are listening to the song Ljósið by Skálmöld, in album Sorgir. The highest quality of audio that you can download is flac . Also, you can play quality at 32kbps, view lyrics and watch more videos related to this song.
Lyrics
Ljósið dansaði, logar skinu
Það létti okkur veturinn, hrakti burtu kala
Ákaft brann i eldstæðinu,
Sá ylur veitti svöngum ró.
Skall á torfinu vestanvindur
Sem vakti ótal óhreinar hugsanir af dvala
Fingur alla frostið bindur
Er fýkur lif úr östkustó.
Stakkur minn er storkinn köldu blóði
Stendur hagl og illska mér í fang
Þungfær liggur þröngur bæjarslóði
Þreytist ég við dimman éljagang.
Ljósið andaðist, logar dóu
Við lágum tvö í myrkrinu, heyrðum börnin gráta
Tíðin var of góð á góu
Nú geldur harpa fyrir það.
Draugagaddurinn bítur beinin
Hvað bældi niður glóðina? Það er snúin gáta
Hlusta ég á vesæl veinin
Og verð að koma mér af stað.
Niðadimm og náköld brennir móðan
Nálgast hjáleiguna, allt er hljótt
Fimbulnæturfrost mig setur hljódan
Ferja þarf ég eldinn heim í nótt.
Í nótt fraus á tjörn
Í nótt dóu börn
Í nótt frusu litlar hendur í hel
Sem höfðu áður leik að legg og skel
Í nótt fraus á tjörn.
Brýst ég heim að bæjarskör
Ber með hnefa hurð af hjör
Birtan sýnir liðin lik
Lokk af enni þeirra strýk.
Konan fölnuð, börnin blá
Bædi liggja, hún þeim hjá
Kaldan horfi köstinn í
Kveiki ég upp eld á ný?
Kveiki ég upp eld á ný?
Littu út um ljórann, vinur
Og leyfðu mér að kveðja þig
Skálinn allur skekst og hrynur
Þá Skotta vildi gleðja sig.
Recent comments