Móri
- Skálmöld (2018)You are listening to the song Móri by Skálmöld, in album Sorgir. The highest quality of audio that you can download is flac . Also, you can play quality at 32kbps, view lyrics and watch more videos related to this song.
Lyrics
Manstu þegar mættir henni fyrst?
Merkilegt er það sem hratt út spyrst
Fjandsamlegar fjölskyldurnar tvær
Forboðið að elska yngismær.
Sládu kalda kinn
Keyrðu hnullunginn
Hart í liðað hár
Hún skal bráðum nár
Búkur verður blár
Blæða opin sár
Heltók huga þinn
Horfði þangað inn.
Áttuð þennan litla leynistað
Lékuð ykkur þar, en nóg um það
Fann ég ykkar hosiló í haust
Horfði á og milli steina skaust.
Fegurðina finn
Fró er rifnar skinn
Hamarinn er hár
Hrynja niður tár
Búkur verður blár
Blæða opin sár
Heltók huga þinn
Horfði þangað inn.
Reiðar eru raddirnar
Ráfa um og leita þar
Móri
Móri.
Bjargaðu þér bóndason
Bjargið er þin eina von
Móri
Móri.
Hafið felur hana vel
Hugar- þitt er brotið þel
Móri
Móri.
Manstu þegar mættir henni fyrst?
Merkilegt er það sem hratt út spyrst
Fjandsamlegar fjölskyldurnar tvær
Forboðið að elska yngismær.
Recent comments