Baldur
- Skalmold (2010)You are listening to the song Baldur by Skalmold, in album Baldur (Reissued). The highest quality of audio that you can download is flac . Also, you can play quality at 32kbps, view lyrics and watch more videos related to this song.
Lyrics
Minningin svíður, ég man þetta vel
Missinn sem skóp hjá mér reiðina
Skaðræðislýður sem skreið yfir mel
Skarinn minn fríður var dreginn um Hel
Óðni, sem bíður, nú ætt mína fel.
Víst var ég kvalinn og visinn og sljór
Vitstola hljóp upp á heiðina
Hálf- var ég galinn er hefnda ég sór
Horfði á dalinn minn, kvaddi og fór
Lamaður, kalinn en leiddur af Þór.
Há var heiðin
Hungur og myrkur
En áfram arkaði
Löng var leiðin
Lítill minn styrkur
Er spor mín markaði.
Skepnan skorin
Skaðræðisópin
Þá Hel loks hörfaði
Víst á vorin
Veinin og hrópin
Berast frá vörðu við Baldurs haug.
Aldrei mun skilja þann skaða sem hlaust
Skelfingarópin og neyðina
Níðings- með vilja þú bein þeirra braust
Börnin mín ylja mér ekki í haust
Sorgir vil hylja, á Tý legg mitt traust.
Ásgarður teymdi mig aftur til þín
Örmagna glóp lýsti leiðina
Varginn mig dreymdi, þá válegu sýn
Vandlega geymdi hvar sól aldrei skín
Lævísin streymdi frá Loka til mín.
Brennheitt blóðið
Bunaði niður
Er Vör oss vitjaði
Hávært hljóðið
Hryglur og kliður
Er búkinn brytjaði.
Líkin lengi
Lágu við steininn
Þá goðin grófu oss
Dána drengi
Dysjuðu beinin.
Og ég þekktist þrekið
Þegar ég hélt af stað
Við hef ég tryggðum tekið
Traustur ég ríð í hlað.
Þú komst særður og sár
Sundrað var allt þrekið
Undir heiðninnar hönd
Hefur fundið stað
Hamar Þórs og hans þrár
Þrymur gat ei tekið
Þessi blóðslegnu bönd
Bera skalt í hlað.
Víkingur á vorkvöldi
Vaskur kallar Óðin
Hallar- opnast hliðin þá
Herma þetta ljóðin.
Baldur heitir bóndinn
Sem bundinn er í ljóðin.
Loks er liðinn
Löstur úr minni
Nú birtast brautirnar
Finn ég friðinn
Frelsa mitt sinni
Nú þagna þrautirnar.
Sláttur slaknar
Sleipnir mig vekur
Mér heilsar Heimdallur
Valhöll vaknar
Við mér hún tekur
Og Goðheimur gjörvallur.
Hlaupum móti hetjum með skjöldinn
Halir rísa aftur á kvöldin
Bölsýnin, ef berst hún um völdin
Burtu skal flæmd.
Höldum því að Heiðrúnarveigum
Hornin fyllum, lyftum og teygum
Sæhrímni til átu við eigum
Engin trog tæmd.
Velkominn vertu
Velkominn víkingur
Velkominn víga valdur
Velkominn vin.
Hetja hefur beinin sín borið
Baldur horfir þó út í vorið
Látlaust fas og létt er hans sporið
Lést hann með sæmd.
Recent comments