Margt Breytist Fyrir Orð Völvanna
- Árstíðir Lífsins (2010)You are listening to the song Margt Breytist Fyrir Orð Völvanna by Árstíðir Lífsins, in album Jötunheima Dolgferð. The highest quality of audio that you can download is flac . Also, you can play quality at 32kbps, view lyrics and watch more videos related to this song.
- Ísa Brots Blómin Milli Hnignunar Marnars Barna - Árstíðir Lífsins
- Morgunn Í Grárri Vindhjálmars Þoku Við Berufjörð - Árstíðir Lífsins
- Velkomin Í Lífið, Ávarpar Maðr Sjálfan Sig - Árstíðir Lífsins
- Haka Kleifir Berja Ok Brjóta Við Enda Langrar Ferðar Sinnar - Árstíðir Lífsins
- Lifðu Með Öðrum, Með þínum Eigin - Árstíðir Lífsins
- Eigi Hefr Á Augu, Unnskíðs Komit Síðan - Árstíðir Lífsins
- Margt Breytist Fyrir Orð Völvanna - Árstíðir Lífsins
- Við Fundum Nýtt Heimili, Langt Burtu Í Vestrinu - Árstíðir Lífsins
- Þat Er Stormr Ok Bláköld Vatnssmíðin Litar Regna Borg - Árstíðir Lífsins
Lyrics
Margt breytist fyrir orð vǫlvanna. Margt, jafnvel allt. Hve furðuleg eru ǫrlǫg mannanna sem lenda á vegum sem þeir ætluðu aldrei að fara! Hvers lags óvæntum leiðum þarf maðr að venjast að ganga á? Gamlar skuldir frá tíma afa míns klifra aftr upp til jarðar hárs. Landið, land mitt, goða Þrúðvaldr ok Nirði tileinkaðr fjǫrðr var tekinn af mér. Hann var tekinn á Alþinginu. Systir afa var skuldbundin í gamla Noregi ok við vorum þá hin síðustu af bǫlvaðri ætt hennar. Land þurfti að gefa fyrir land og með stuðningi fárra goða þurfti að gefa réttlæti fyrir óréttlæti. Mannahamrar voru aldrei traustverðir sagði faðir minn mér eitt sinn. Ok hve rétt þat var! Við lifðum hér í sælu með ǫllum nágrǫnnunum í fjǫrðunum sínum. Handan bergsala, já, þar voru svik úlfs fǫðr ekki fjarlæg. En af hverju dvǫldu þau þá ekki lengr í hlǫðvinjar myrkbeina? Margir hauga herrar verða að breytast í steina ok munu brotnir í mola til að gefa heiminum jafnvægi sitt aftr! Ek heyri manna dolga hlátr bergmála í dalnum. Erum ekki lengr heima, dæmd á hausti þessa gamla árs. Sólina myrkvaði fyrir hálfmánuði. Eru mennirnir verk Hropts magana eða eru goðin mannaverk? Hví stóð enginn ragna reinvári mér við hlið? Hver tekr Þórs víf, hvers lags svarta bjargalfr, hvers lags urðar þjótr? Býli sem í tvær kynslóðir var ræktað fyrir þursa þjóðar sjót, yfirgefið verðr þat hér eftir. Við siglum burt með knarrar skeið, marrandi vegna eigna heilla Njǫrðunga. Mikið var gefið ok margt skilið eftir. Við siglum áfram meðfram endalausum svǫrtum strǫndum, sjáum oéndanlega hvíta hvelið yfir þeim og fǫrum um suðlæga hornið. Burt, burt til jarðar skarð hafi slétt vestrsins. Burt til hlýs vors strandlengjunnar sem spýtir brennisteinshita frá djúpi Surts. Enn gefr þú varma, dreki! Þú, dreki undirheimanna!
Recent comments